Karlalið KA fer vel af stað á Íslandsmótinu í blaki. Liðið hefur unnið báða leiki sína til þessa en KA vann Aftureldingu, 3-1, í KA-heimilinu sl. helgi. Hrinurnar fóru 25-22, 25-22, 10-25 og 25-20. Piotr Kempisty var að vanda atkvæðamestur í liði KA en hann skoraði 30 stig. Benedikt Rúnar Valtýsson skoraði sex stig og Filip Szewczyk fimm stig. KA hefur fimm stig í öðru sæti deildarinnar, en liðið hefur leikið tveimur leikjum minna en Þróttur Neskaupstað sem hefur sjö stig á toppnum. Afturelding er án stiga á botninum.
Það gengur ekki eins vel í kvennaflokki hjá KA sem hefur tapað báðum leikjum sínum til þessa á Íslandsmótinu og hefur ekki enn unnið hrinu. KA steinlá á heimavelli gegn Aftureldingu, 0-3, sl. helgi. Afturelding vann hrinurnar 25-14, 25-7 og 25-13. Alda Ólína Arnarsdóttir skoraði sjö stig fyrir KA og þær Dagný Alma Jónasdóttir og Eva Sigurðardóttir sex stig hvor. Fyrir lið Aftureldingar skoraði Zaharina Filipova tólf stig, Miglena Apostolova ellefu stig og Auður Anna Jónsdóttir níu stig. KA er á botni deildarinnar án stiga en Afturelding hefur þrjú stig í fjórða sæti.