Ástæðan fyrir því að ég ákvað að taka slaginn með KA er að ég skynja að það er mikill kraftur í félaginu núna. Mér finnst virkilega vera lag til þess að taka skrefið og koma liðinu upp í efstu deild, þar sem ég tel að það eigi heima. Ég hef alltaf fylgst með KA-liðinu úr fjarlægð og það er skemmtileg blanda af reyndum KA-mönnum, góðum erlendum leikmönnum og mjög efnilegum strákum sem eru að koma upp. Síðast en ekki síst hefur félagið fengið til sín mjög góðan þjálfara, sem verður virkilega gaman að vinna með, segir knattspyrnumaðurinn og miðvörðurinn Atli Sveinn Þórarinsson í viðtali á heimasíðu KA.
Eftir átta ára fjarveru frá sínu uppeldisfélagi snýr Atli aftur en gengið var frá tveggja ára samningi við leikmanninn um liðna helgi sem gildir út tímabilið 2014. Atli Sveinn, sem er 32 ára, hefur leikið með Val í úrvalsdeildinni síðan árið 2005 og verið fyrirliði liðsins undafarin ár. Þetta er mikill hvalreki fyrir KA-liðið en Atli er reynslubolti í fótboltanum. Hann spilaði upp alla yngri flokka KA og upp í meistaraflokk. Á árunum 1997 til 1999 spilaði hann 43 leiki með KA í deild og bikar, fór árið 2000 til Svíþjóðar þar sem hann spilaði til ársins 2004 með Örgyte er hann kom aftur til KA og spilaði með liðinu eitt keppnistímabil. Atli Sveinn á að baki 282 meistaraflokksleiki í deild og bikar, þar af 179 með Val, 60 með KA og 43 með Örgryte. Auk þess hefur hann spilað níu landsleiki með A-landsliðinu, fjóra U-21 landsleiki og sjö U-19 landsleiki.
Frábær tíðindi
Þetta eru frábær tíðindi fyrir okkur. Atli Sveinn hefur verið einn af bestu miðvörðum úrvalsdeildarinnar í mörg ár. Með honum fáum við mikla reynslu og sterkan karakter í liðið og um leið erum við að fá gamlan KA-mann til baka sem mun miðla af reynslu sinni til ungu strákanna okkar, sagði Bjarni Jóhannsson þjálfari KA eftir undirskriftina.