JÖKLABLÁMI opnun í Verksmiðjunni á Hjalteyri 17 maí 2025, kl. 14:00

JÖKLABLÁMI
opnun í Verksmiðjunni á Hjalteyri 17 maí 2025, kl. 14:00
JÖKLABLÁMI opnun í Verksmiðjunni á Hjalteyri 17 maí 2025, kl. 14:00

Sýningin Jöklablámi opnar í Verksmiðjunni á Hjalteyri 17 maí kl. 14:00 Sýningin stendur til og með 22 júní. Opið alla daga nema mánudaga frá 14:00 til 17:00

Jöklablámi er margmiðlunarsýning, tileinkuð fyrsta Alþjóðaári jökla. Uppistaða sýningarinnar er myndefni (ljósmyndir og myndbönd) af jöklum Hornafjarðar sem Þorvarður Árnason hefur skapað/safnað í næstum tvo áratugi, einkum þá að vetrarlagi.

Þorvarður er forstöðumaður Rannsóknaseturs Háskóla Íslands á Höfn í Hornafirði og hefur ferðast víða um jökulheima Hornafjarðar, dvalið þar, notið ægi- og ævintýrafegurðar og leitast við að fanga litadýrð jökla og mikilfengleika þeirra með ýmis konar myndavélum.

Jöklamyndir hans eru, í senn, vitnisburður um veröld sem var – jöklalandslag sem nú er óðum að hverfa – og tilraunir til að ná utan um margvíslega, einstaka fagurferðilega þætti sem undirbyggja sjónræna upplifun af jöklum. Sýningin dregur nafn sitt af sérstæðum bláum lit – jöklabláma – sem alla jafnan er aðeins sýnilegur um hávetur, eftir að jökulísinn hefur undirgengist ákveðin árstíðabundin hamskipti. Jöklablámi hefur óhjákvæmilega sterka skírskotun til yfirstandandi hamfararhlýnunar en veltur um leið upp áleitnum spurningum um nauðsyn á aukna samtali vísinda og lista varðandi aðgerðir gegn slíkum hamförum.

Jöklablámi er sjálfstætt framhald sýningarinnar Blámi sem sett var upp í Listasafni Svavars Guðnasonar árið 2023 og þar sem áhersla var lögð á samtal og samvinnu við aðra lista- og fræðimenn. Sýnendur Jöklabláma eru, auk Þorvarðar, Þóranna Dögg Björnsdóttir, Konstantine Vlasis og Gústav Geir Bollason, ásamt fimm ungum frönskum listamönnum og -nemum (Leila Vilmouth, Clara Midon Gomez, Miä Brenguier, Céleste Philippot, Paulinea Brami) sem taka þátt í þverfaglegri vinnustofu sem skipulögð var í tilefni sýningarinnar.[Sýningin er styrk Sóknaráætlun Suðurlands og Háskóla Íslands.]
SSNE, Myndlistarsjóður, Hörgársveit, Menningarsjóður KEA og Landsbankinn styrkja Verksmiðjuna 2025

Nýjast