Breska sveitin Jethro Tull er væntanleg til Íslands í byrjun júní og efnir til þrennra tónleika í heimsókn sinni, þar sem sveitin flytur öll sín þekktustu lög. Tónleikarnir verða í Hofi á Akureyri föstudaginn 7. júní, í Höllinni í Vestmannaeyjum laugardaginn 8. júní og í Eldborgarsal Hörpu í Reykjavík sunnudaginn 9. júní. Íslenskir tónlistarmenn koma jafnframt við sögu á tónleikum Tull í sumar. Miðasala á tónleikana hefst í Hörpu og á midi.is þann miðvikudaginn 10. apríl nk. kl. 12 á hádegi.
Á tónleikunum mun Tull bjóða aðdáendum sveitarinnar upp á dagskrá sem spannar 45 ára feril sveitarinnar eða Best of Jethro Tull. Á meðal laga sem flutt verða eru Aqualung, Locomotive Breath, Bouree, Budapest, Living in the Past og fleiri perlur.
Þetta er í fimmta sinn sem Jethro Tull kemur til Íslands til tónleikahalds en í fyrsta skipti sem sveitin leikur á Akureyri og í Vestmannaeyjum. Auk tónleika í Reykjavík hefur sveitin haldið tónleika á Akranesi þegar hún kom fyrst hingað til lands til tónleikahalds árið 1992.