Jafnt vægi atkvæða? Já eða nei?

Grétar Þór Eyþórsson.
Grétar Þór Eyþórsson.

Grétar Þór Eyþórsson, prófessor í stjórnmálafræði við Háskólann á Akureyri, mun í dag halda erindi á félagsvísindatorgi skólans og fjalla um tillögur stjórnlagaráðs að nýrri stjórnarskrá. Þjóðin gengur að kjörborðinu þann 20. október næstkomandi og mun Grétar Þór í erindi sínu Jafnt vægi atkvæða? Já eða nei?, einkum ræða um fimmtu spurninguna: Vilt þú að í nýrri stjórnarskrá verði ákvæði um að atkvæði kjósenda alls staðar að af landinu vegi jafnt?” Torgið verður í stofu M102 og hefst kl. 12.00. Allir velkomnir.
 
Grétar Þór Eyþórsson er prófessor á viðskipta- og raunvísindasviði og hug- og félagsvísindasviði við Háskólann á Akureyri frá árinu 2008. Hann lauk BA-prófi í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands árið 1989, meistaraprófi í stjórnmála- og stjórnsýslufræðum frá Gautaborgarháskóla árið 1992 og doktorsprófi í stjórnmálafræði við sama skóla árið 1999.

Hann hefur meðal annars starfað sem rannsóknarstjóri RHA(1999-2001), forstöðumaður RHA (2001-2005), forstöðumaður Byggðarannsóknastofnunar (2001-2005), forstöðumaður Rannsóknamiðstöðvar Háskólans á Bifröst (2005-2008) og prófessor við félagsvísindadeild Háskólans á Bifröst (2005-2008).

Nýjast