Valur og Þór/KA skildu jöfn, 2-2, er liðin mættust á Vodafonevellinum í kvöld í Pepis-deild kvenna í knattspyrnu. Valur komst í 2-0 með marki frá Johannu Rasmussen undir lok fyrri hálfleiks og sjálfsmarki frá Örnu Sif Ásgrímsdóttur í upphafi þess síðari. Katrín Ásbjörnsdóttir minnkaði muninn fyrir Þór/KA með marki úr vítaspyrnu þegar átján mínútur voru til leiksloka og Lillý Rut Hlynsdóttir jafnaði metin fyrir gestina átta mínútum síðar.
Þór/KA hefur 29 stig á toppnum en Valur 20 stig í fjórða sæti. Stjarnan, sem sigraði KR í kvöld, hefur minnkað forystu norðanliðsins niður í þrjú stig og hefur 26 stig í öðru sæti.