Jafnrétti til búsetu

Anna Kolbrún Árnadóttir
Anna Kolbrún Árnadóttir

Sumir kunna að halda því fram að ódýrast sé að setja alla þjónustu hins opinbera niður á einum stað þ.e. á höfuðborgarsvæðinu. En flestir vita nú betur og gera sér grein fyrir því að hagkvæmast er fyrir skattgreiðendur að skattar þeirra renni til þess að skapa fjölbreytt störf og efla þjónustu í heimabyggð.

Að þessu sögðu er því mikilvægt að benda á að það er hlutverk stjórnvalda að skapa rammann en núna virðast þau helst vilja drepa niður öll tækifæri sem gefast. Áherslur þeirra einkennast m.a. að óhóflegri skattlagningu og flækjustig skattamála er þvílíkt að ætla mætti að þau hefðu í raun ekki hugmynd um afleiðingarnar. En þær geta verið umtalsverðar og ef tækifærin eru ekki nýtt getur það endað með því að öll þjónusta endar á einum stað og á því svæði sem flestir búa og ég er ekki viss um að það sé óskastaðan.

SJÁ NÁNAR "AÐSENDAR GREINAR" vinstra megin á vikudagur.is

Nýjast