Jaðarsvöllur liggur undir skemmdum

Starfsmenn golfvallarins voru í óðaönn að brjóta klaka í gærmorgun. Mynd/Þröstur Ernir.
Starfsmenn golfvallarins voru í óðaönn að brjóta klaka í gærmorgun. Mynd/Þröstur Ernir.

„Þeir sem til þekkja eru sammála um að þetta ástand sé það versta í manna minnum. Þetta tímabil er komið langt yfir það sem grasið þolir,“ segir Steindór Ragnarsson vallarstjóri á Jaðarsvelli hjá Golfklúbbi Akureyrar. Grasið á vellinum liggur undir skemmdum vegna klaka sem þekur nánast allan völlinn. Steindór segir meiri líkur en minni á að grasið á vellinum komi ónýtt undan vetri.

„Við reynum hvað við getum að halda klakanum í skefjum en það bendir flest til þess að grasið verði illa farið í vor,“ segir Steindór. Margar flatir á Jaðarsvelli fóru illa fyrir tveimur árum vegna klakamyndunar en ástandið núna er mun verra. Veðrið undanfarnar vikur og mánuði hefur verið afar óhagstætt að sögn Steindórs. „Það væri heppilegast að hafa stöðugt hitastig en ekki að hitatölurnar séu á eilífu flakki öðru hvoru megin við núllið eins og verið hefur. Það er bara ávísun á klakamyndun.“

throstur@vikudagur.is

Nánar er fjallað um ástand á grasvöllum á Akureyri í prentútgáfu Vikudags.

Nýjast