Íþróttamaður Akureyrar útnefndur í dag

Arna Sif Ásgrímsdóttir er íþróttamaður Akureyrar 2012
Arna Sif Ásgrímsdóttir er íþróttamaður Akureyrar 2012

Íþróttabandalag Akureyrar boðar til verðlaunahátíðar  í Menningarhúsinu Hofi síðdegis í dag, þar sem lýst verður kjöri íþróttamanns Akureyrar 2013. Jafnframt fá þeir íþróttamenn sem aðildarfélög ÍBA hafa tilnefnt sem sinn íþróttamann  ársins 2013 afhentar viðurkenningar.

Við sömu athöfn verða afhentar heiðursviðurkenningar Íþróttaráðs Akureyrarbæjar. Þá verða afhentar viðurkenningar og styrkir til þeirra íþróttafélaga sem áttu landsliðsmenn og Íslandsmeistara á árinu 2013. Þessar viðurkenningar hafa hingað til verið afhentar íþróttafólkinu sjálfu í sérstöku hófi á milli jóla og nýárs, en fyrirkomulagið er nú breytt.

Dagskráin hefst klukkan 17:00 og er öllum opin.

Nýjast