Þetta er mjög fjölbreytt starf og það heldur manni í þessu. Ég er alltaf aðkynnast nýju fólki og það er yndislegt, segir Aðalsteinn Sigurgeirsson forstöðumaður Íþróttahallarinnar á Akureyri. Þann 5. desember sl. voru 30 ár liðin frá formlegri opnun hússins. Bygging Hallarinnar hófst árið 1977 og fimm árum síðar var hún tekin í notkun eða árið 1982. Aðalsteinn hefur starfað í Höllinni frá byrjun og fræddi Vikudag um húsið og starfsemina.
Íþróttahöllin er svo miklu meira en bara íþróttasalur. Hér fara fram viðburðir af ýmsu tagi á hverju ári, t.d. útskriftir, árshátíðir og þing. Sennilega fer fjölmennasta áfengislausa hátíðin á landinu fram hér á hverju ári þegar Menntaskólinn á Akureyri heldur sína árshátíð. Einnig voru hér 1300 manns í mat á árshátíð Akureyrarbæjar.
Þétt dagskrá
Margir álíta að hér sé ekkert um að vera þegar íþróttaleikir né aðrir stórir viðburðir eru ekki í gangi. Svo er aldeilis ekki. Hér er dagskrá frá átta á morgnana til ellefu á kvöldin. Þrír skólar, VMA, MA og Brekkuskóli, hafa íþróttaaðstöðu hér yfir daginn og svo taka íþróttafélögin við seinni partinn og fram á kvöld. Einnig er Heimahjúkrun á Akureyri með starfsemi í húsinu allan sólarhringinn. Það er því alltaf eitthvað um að vera.
Af íþróttafélögum á Akureyri sem hafa aðstöðu í Íþróttahöllinni má nefna Golfklúbbinn, Skákfélagið, Kraftlyftingafélagið, Skotfélagið og handknattleikslið Akureyrar í karlaflokki.
Samskiptin við alla þá, sem eru með aðstöðu og æfingar í Höllinni, hafa gegnumgangandi verið sérlega ánægjuleg öll þessi ár. Það skiptir miklu máli, segir Aðalsteinn.
Mikilvægt hlutverk
Íþróttahöllin gegnir mikilvægu hlutverki fyrir Akureyrarbæ. Flestum útskriftum og öðrum viðburðum sem fram fara í Höllinni fylgir ferðafólk, sem síðan verslar í bænum. Það er mikið framboð af veitingahúsum og annarri þjónustu hérna í bænum sem án efa nýtur góðs af því sem fram fer í Höllinni. Þannig að gildi hússins fyrir bæinn er óumdeilanlegt að mínu mati.
300.000 þúsund gestir á ári
Vinnudagurinn er jafnan annasamur hjá Aðalsteini en í Höllina koma um 300.000 þúsund manns að meðaltali á ári. Það tel ég þokkalegt í 18 þúsund manna samfélagi. Þannig að við sem störfum hérna höfum nóg að gera, segir Aðalsteinn, en auk hans eru fjórir fastir starfsmenn í Höllinni.
Dagarnir eru misjafnir en það er mest að gera þegar stórir viðburðir eru á dagskrá, t.d. þegar handboltaleikur á að fara fram um kvöldið fer allur tíminn frá hádegi í undirbúning. En þótt mikið sé að gera er alltaf gaman í vinnunni, hér hefur alltaf verið frábær starfsandi og gott starfsfólk. Að lokum vill Aðalsteinn koma að vísu sem vinur hans, Bjarni Hafþór Helgason, samdi í tilefni afmælis Hallarinnar. Hún er svohljóðandi:
Í Höllinni við getum hist
og hent að mörgu gaman.
Íþróttir og andans list
eiga gjarnan saman.
Nánar er rætt við Aðalstein í prentútgáfu Vikudags.