Í dag var tekin í notkun stækkuð verksmiðja hverfisteypufyrirtækisins Promens Dalvík. Með tilkomu 840 fermetra viðbyggingar og þriðja hverfisteypuofnsins eykst framleiðslugeta verksmiðjunnar um 60%. Fyrirtækið er því vel í stakk búið að mæta aukinni eftirspurn á komandi árum. Nýi hverfisteypuofninn, sem ræstur var á Dalvík í dag, er einnig einstakur á heimsvísu því þetta er í fyrsta sinn sem ofn af þessari stærð er knúinn rafmagni í stað olíu- eða gasbrennara.
Mikilvægt að skipta yfir í græna orku
Eitt af markmiðum okkar í aðdraganda ákvörðunar um stækkun verksmiðjunnar hár á Dalvík var að finna leið til að nýta innlenda græna orkugjafa í stað olíubrennslunnar. Ofninn fáum við frá Reinhard, sama fyrirtæki og framleiddi eldri hverfisteypuofna fyrirtækisins sem hafa reynst mjög vel. Það eru miklir kostir við að skipta yfir í rafmagnið, bæði fyrir starfsmenn, umhverfið og hagstætt fyrir þjóðfélagið. Stefnan er að skipta um búnað í eldri ofnunum og að innan fárra ára verði framleiðsla Promens Dalvík alfarið keyrð á rafmagni. Það skiptir að okkar mati miklu máli að geta státað af þessu skrefi á mörkuðum okkar, segir Daði Valdimarsson, framkvæmdastjóri Promens Dalvík.
Nýi ofninn er keyrður í 400 gráðu hita en auk tæknibyltingarinnar með ofninum er í nýja húsinu öflugt blásturskerfi til kælingar á steypumótunum eftir að þau koma út úr ofninum. Promens Dalvík er því á margan hátt að stíga tækniskref inn í framtíðina, jafnframt því að vera betur í stakk búið fyrir sífellt aukna spurn eftir framleiðsluvörum fyrirtækisins.
Sjávarútvegurinn er þungamiðjan
Verksmiðjan hér á Dalvík er ein af fjórum verksmiðjum Promens hf. sem framleiðir plastker til notkunar í matvælaiðnaði. Framleiðslutæknin sem við höfum þróað hér á Dalvík undanfarna áratugi er grunnurinn í öllum þessum fjórum verksmiðjum í dag og héðan stýrum við kerjahlutanum og samræmum vöruþróunar-, framleiðslu- og sölumál. Héðan frá Dalvík hafa verið fluttar framleiðsluvörur til yfir 60 landa en okkar aðal markaðssvæði er Evrópa, segir Daði en framleiðsla fyrir sjávarútveg hefur allt frá upphafi verið þungamiðjan í vöruþróun og framleiðslu Sæplast-kerjanna.
Það er ekki síst vegna þess að við Íslendingar höfum átt öflugan og framsækinn sjávarútveg sem Promens hefur náð þeirri stöðu að vera leiðandi á heimsvísu í þróun og framleiðslu á einangruðum plastkerjum fyrir sjávarútveg. Undanfarin ár höfum við unnið markvisst í að koma okkur inn í aðra geira matvælaiðnaðarins. Áhugi kjötiðnaðarfyrirtækja á notkun kerjanna hefur til að mynda stöðugt farið vaxandi og hann á ekki síst sinn þátt í því að ákveðið var að ráðast í stækkun verksmiðjunnar á Dalvík.
Nýja viðbyggingin gerir ráð fyrir fjórða ofninum og því má segja að horft sé til langrar framtíðar með nýja húsinu.
270 milljóna fjárfesting
Framkvæmdir við bygginguna hófust í árslok 2011. Arkitekt hússins er Bjarni Reykjalín á Akureyri, Verkfræðiskrifstofa Norðurlands annaðist byggingafræðilega útreikninga, Raftákn hf. á Akureyri hafði með höndum rafhönnun en aðalverktaki var Tréverk á Dalvík.
Heildarfjárfesting í nýja verksmiðjuhúsinu og búnaði er um 270 milljónir króna og kom Landsbanki Íslands að fjármögnun verkefnisins.