Ingvi Rafn býður sig fram í 2.-4. sæti á framboðslista Sjálfstæðisflokksins

Ingvi Rafn Ingvason
Ingvi Rafn Ingvason

Ingvi Rafn Ingvason, tónlistarmaður, Akureyri, býður sig fram í 2.-4. sæti á lista Sjálfstæðisflokks í Norðausturkjördæmi.
Baráttumál Ingva eru:
"Að fólk hafi vinnu. Að umhverfi fyrirtækja sé þannig að skattar séu hóflegir og hvetji til þess að fólk geti og vilji stofna ný fyrirtæki. Að skattar verði engir á laun fólks að 300.000 kr., skattar verði 20% á laun yfir 300.000 -700.000 og eftir það 30%. Almenningur í landinu verður að hafa eitthvað milli handanna eftir að búið er að taka af því skatta og ríkið fær tekjur í gegnum virðisaukaskatt og launaskatt; bæði frá fyrirtækjum og einstaklingum. Að fólk geti fengið óverðtryggð húsnæðislán á sambærilegum kjörum og í nágrannalöndum okkar. Að verðtrygging verði afnumin. Að koma upp gróðurhúsum með niðurgreiddri orku sem getur skapað tugi starfa allt árið um kring og ræktað lífræna vöru, t.d. salat, melónur og fl. sem við erum að flytja inn í dag. Að huga betur að skapandi greinum sem eru vistvænar eins og tónlist, kvikmyndir, tölvuforritun og tölvuvinnsla og tengja það líka fólki sem af einhverjum ástæðum er ekki á vinnumarkaði en hefur getu og vilja til þess að vera virkara í lífinu.  Að ríkið endurgreiði hluta kostnaðar vegna tónlistarupptöku og tölvuleikjagerðar eins og gert er vegna kvikmyndagerðar sem myndi efla þessar greinar enn frekar.  Að eldra fólk, fatlaðir, atvinnulausir og öryrkjar geti lifað með reisn og án þess að finnast þau baggi á þjóðfélaginu. Að tryggja grunnstoðir þjóðfélagsins og gera sér grein fyrir að niðurskurður í heilbrigðis- og menntamálum er kominn að þolmörkum. Að við lærum af fortíðinni en búum svo um hlutina að þeir fari ekki í sama spillingar- og leyndarfarið aftur eins og raunin er eftir fjögurra ára vinstri valdatíð. Að við finnum stolt og von í því að vera Íslendingar þar sem við erum frjáls til þess að hugsa, starfa, leika okkur og lifa í þjóðfélagi sem leggur áherslu á mannúð, menntun og frelsi en um leið ábyrgð einstaklingsins."

Ingvi er 42 ára Akureyringur og er yngstur af 8 börnum Ingva Rafns Jóhannssonar, rafvirkjameistara- og söngvara og Sólveigar Jónsdóttur, húsmóður.
- Fréttatilkynning

Nýjast