Ingibjörg Isaksen vill annað sæti á lista Framsóknar

Kosið verður i fimm efstu sætin á framboðslista Framsóknarflokksins á Akureyri fyrir bæjarstjórnarkosningarnar á almennum félagsfundi sem haldinn verður 15. mars.

Guðmundur Baldvin Guðmundsson bæjarfulltrúi hefur gefið út að hann vilji leiða listann. Samvæmt heimildum Vikudags hefur Ingibjörg Ísaksen þegar tilkynnt að hún sækist eftir öðru sæti listans. Ingibjörg er forstöðumaður íþróttamannvirkja Eyjafjarðarsveitar.

Frestur til að tilkynna framboð rennur út 1. mars.

Nýjast