Inanna og Ereskigal frumsýnt

Anna Richards og Ernesto Camilo Aldazabal Valdes
Anna Richards og Ernesto Camilo Aldazabal Valdes

 Fjöllistakonan Anna Richards og dansarinn Ernesto Camilo Aldazabal Valdes frumfyltja á föstudaginn verkið Inanna og Ereskigal í Rýminu á Akureyri

 Inanna og Ereskigal er byggt á  milli fjögur til fimmþúsund ára gömlum ljóðum frá Mesópótamíu hinni fornu. Í ljóðunum fer gyðjan Inanna í undirheimaferð til að hitta bróður sinn - upprunalega systur sína - í undirheimum.  Inanna er sjálf gyðja jarðarinnar og frjóseminnar.

Anna og Camilo vinna verkið á mjög persónulegan hátt í bland við upprunalegu söguna. Verkið verður með rými fyrir spuna en það er samið af þeim tveimur.

Anna Richards hefur unnið að list sinni á Akureyri undanfarin rúm 20 ár. Camilo er menntaður dansari og  danshöfundur frá Kúbu. Anna og Camilo eru mjög ólík og leika sér með það í sýningunni.

Sýningin er unnin í  samstarfi við Leikfélag Akureyrar og verður flutt í Rýminu föstudaginn 30. nóvember og laugardaginn 1. desember klukkan 20.30

 

Nýjast