Þungfært er á Akureyri en talsvert hefur snjóað og skaflar myndast víða. Skyggni er lélegt og illfært fyrir fólksbíla á götum bæjarins. Nokkuð hefur verið um að bílar hafi setið fastir í morgun að sögn lögreglunar á Akureyri en reynt er að halda strætóleiðum opnum. Það hefur oft verið meiri ringulreið í svona veðri en núna. Fólk virðist almennt vera meðvitað um hvort það geti farið af stað og margir halda sig heima meðan færðin er þung, sagði varðstjóri hjá lögreglunni.
Björgunarsveitin Súlur á Akureyri sinnti þremur útköllum í gærkvöld á Öxnadalsheiðinni, í Hörgárdal og í Eyjafirði þar sem bílar sátu fastir. Sveitin hefur ekki þurft að aðstoða fólk í morgun.
Skólahald í Verkmenntaskólanum á Akureyri fellur niður í dag vegna veðurs en kennsla er með hefðbundnum hætti í öðrum skólum bæjarins.