Íhuga að hætta rekstri heilsugæslustöðvar

„Við höfum sagt heilbrigðisráðherra að bærinn treysti sér ekki til að reka Heilsugæslustöðina á Akureyri fyrir ríkið með óbreyttu fyrirkomulagi,“ segur Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri á Akureyri. Bærinn rekur stöðina, samkvæmt samningi við ríkið og hefur þurft að greiða með rekstrinum, þar sem fjárveitingar hafa ekki dugað.  Flest önnur sveitarfélög þurfa ekki að greiða fyrir heilsugæslu úr sínum sjóðum, þar sem reksturinn er alfarið á vegum ríkisins.

Fundir hafa verið haldnir um málið á undanförnum vikum. Fáist ekki auknar fjárveitingar, getur farið svo að ríkið taki aftur við rekstri heilsugæslustöðvarinnar. Stöðugildin við stöðina eru um fimmtíu.

Fjallað er um málið í prentútgáfu Vikudags. Þar er rætt við bæjarstjórann á Akureyri og heilbrigðisráðherra.  

Nýjast