Um helgina fer fram hið árlega alþjóðlega krullumót, Ice Cup, í Skautahöllinni á Akureyri. Þetta er í tíunda sinn sem mótið er haldið, en það er Krulludeild Skautafélags Akureyrar sem stendur fyrir mótinu.
Alls taka 16 lið þátt í mótinu að þessu sinni, þar af sex erlend. Erlendu keppendurnir eru 24 og koma frá Bandaríkjunum, Danmörku, Englandi, Hollandi og Svíþjóð. Þátttakendur eru als um 70 talsins.
Fyrstu leikir hefjast kl. 18.00 í dag. Keppni stendur til kl. 22.30 í kvöld, og svo frá kl. 10.00-20.00 á föstudag og frá kl. 9.30 á laugardag. Úrslitaleikir mótsins hefjast kl. 15.30 á laugardag.
Formaður Krulludeildar SA er Hallgrímur Valsson en keppnisstjóri á mótinu er Haraldur Ingólfsson