Íbúum fjölgar á Norðurlandi eystra

Fólk fjölgar á Norðurlandi eystra
Fólk fjölgar á Norðurlandi eystra

Samkvæmt tölum úr Þjóðskrá fjölgaði fólki á Norðurlandi eystra frá 1 des. sl. til 1 júni s.l um 157 manns eða um 0,5%. Þetta er sama fjölgun og var á landsvísu á sama tima.

Akureyringum fjölgaði um 112 á tímabilinu eða um 0,5% svo fjölgun hér er samkvæmt lands meðaltali. Bæjarbúar voru því þann 1 júni 20.494 talsins. Í Norðurþingi hækkaði hinsvegar um 18 manns og eru íbúar þar 3.234.

Fólki fjölgar i Hörgárbyggð, íbúar þar 1. júni voru 884 og hafði fjölgað um 2,2%.  Það er sama prósentutala og Eyjafjarðarsveit getur státað af þegar kemur að fólksfjölgun, íbúar þar reyndust vera 1,244 og sem er fjölgun um 26 manns frá 1. des. s.l.

Nýjast