Í tilefni 150 ára afmælis Akureyrarkaupstaðar ákvað bæjarstjórn Akureyrar að veita allt að hálfum milljarði króna í sérstakt umhverfisátak næstu fimm árin. Fjárveitingin er ætluð til nýframkvæmda og stofnbúnaðarkaupa í málum sem fyrst og fremst tengjast umhverfismálum í sveitarfélaginu öllu, s.s. endurgerð leikvalla, gerð göngu- hjóla- og reiðstíga, fegrun og frágang opinna svæða, skógrækt, endurgerð og endurplöntun. Opnað hefur verið sérstakt svæði á heimasíðu bæjarins, þar sem íbúarnir geta skráð niður hugmyndir og sent bænum. Íbúarnir eru með öðrum orðum virkjaðir, frestur til að skila inn hugmyndum eða tillögum er til 15. mars.
Nú þegar hafa margir íbúar haft samband við okkur, þess vegna opnum við þetta svæði á heimasíðu bæjarins. Þannig verður vonandi hægt að halda vel utan um þetta verkefni. Nefndir bæjarins koma að málinu og þar hafa verið settar fram ýmsar tillögur um hvernig best sé að verja þessum fjármunum, segir Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri.
Oddur Helgi Halldórsson formaður framkvæmdanefndar segir upplagt að virkja almenning.
Hver og ein hverfisnefnd á Akureyri fær 2 milljónir króna til umráða, þeim er frjálst að ráðstafa peningunum sem best þykir. Nefndirnar í Grímsey og Hrísey fá svo eina milljón króna hvor. Á íbúaþingi sem haldið var á síðasta ári komu fram margar gagnlegar og skemmtilegar tillögur, sem við setjum í pottinn. Framkvæmdaráð og aðrar deildir bæjarins leggja svo líka í púkkið, þannig að ég býst við að gagnabankinn verði nokkuð öflugur og myndarlegur í lokin.
Lenda ekki í pappírstætaranum
Þessi hálfi milljarður er ekki afmælisgjöf til bæjarstjórnar, heldur er þetta gjöf til íbúanna. Ég býst við að allar tillögur og hugmyndir sem berast kosti samtals nokkra milljarða króna, þannig að einhverjir fyllast valkvíða áður en endanlegar ákvarðanir verða teknar, segir Eiríkur Björn bæjarstjóri.
Oddur Helgi útilokar ekki að svipuð leið verði farin á öðrum sviðum.
Við höfum ekkert ákveðið, en ef þátttakan verður góð er ekki útilokað að nota þessa aðferð við aðrar ákvarðanir í bæjarfélaginu okkar. Reykjavíkurborg lætur íbúa einstakra hverfa kjósa um verkefni og það er spennandi nýjung. Þær hugmyndir sem ekki fá brautargengi að þessu sinni lenda örugglega ekki í pappírstætaranum, þær nýtast kannski síðar. Ég hvet því alla til að taka þátt.
karleskil@vikudagur.is