Á síðasta ári tóku íbúar sveitarfélaga á Eyjafjarðarsvæðinu út 1,2 milljarða króna af séreignarsparnaðarreikningum sínum og á þessu ári er áætlað að úttektirnar nemi samtals 534 milljónum króna. Í lok árs hafa þeir því tekið út um 1,7 milljarða á tveimur árum.
Samkvæmt lögum frá 2009 um sérstaka útgreiðslu séreignarsparnaðar var heimiluð úttekt á honum til rétthafa yngri en 60 ára. Fjárhæðin greiðist út með jöfnum mánaðarlegum afborgunum á 15 mánaða tímabili. Þegar rýnt er í tölur um úttektir kemur í ljós að íbúar sveitarfélaga við Eyjafjörð tóku út 5,3 milljarða króna á árunum 2009 til og með 2012. Eins og fyrr segir áætla þeir að taka út liðlega hálfan milljarð á þessu ári. Á Akureyri er eðlilega mest tekið út, enda flestir sem þar búa.
Nánar um þetta í prentútgáfu Vikudags