Íbúar Akureyrarbæjar voru 17.990 í lok þriðja ársfjórðungs, samkvæmt tölum Hagstofu Íslands. Í lok annars ársfjórðungs voru íbúarnir 18.030, þannig að þeim hefur fækkað lítillega samkvæmt þessum tölum. Í lok fyrsta ársfjórðungs voru íbúarnir á Akureyri samtals 17.930. Íbúum hefur með öðrum orðum fjölgað á árinu, þótt þeim hafi fækkað í sumar.
Í Dalvíkurbyggð voru íbúar 1.870 í lok þriðja ársfjórðungs, en þeir voru 1.880 i lok annars ársfjórðungs.
Í Fjallabyggð voru íbárnir samtals 2.010 í lok þriðja ársfjórðungs, en þeir voru 2.020 í lok annars ársfjórðungs.
karleskil@vikudagur.is