Hvetur fólk til að kjósa snemma

Páll Hlöðvesson/mynd Karl Eskil
Páll Hlöðvesson/mynd Karl Eskil

„Við talningu atkvæða starfa um þrjátíu manns, starfsmenn einstakra kjörnefnda í kjördæminu skipta svo hundruðum,“ segir Páll Hlöðvesson formaður yfirkjörstjórnar Norðausturkjördæmis.  „Lögreglan sér um að safna saman atkvæðum og kjörgögnum, þannig að þetta er mikill fjöldi, þegar allt er talið.

Í ýmis horn að líta

„Já, já, það koma alltaf upp ýmis mál sem yfirkjörstjórnin þarf að leysa. Okkur berast fjölmargar fyrirspurnir frá kjörstjórnum um framkvæmd kosninganna og við reynum að svara öllum fyrirspurnum um leið og þær berast.“

Gamall í hettunni

„Ég hef setið í yfirkjörstjórn í tugi ára, þannig að ég á að vita hvað snýr upp og niður. Þetta er skemmtileg vinna og mikið um mannleg samskipti. Það gengur vel að fá fólk til starfa, enda er mikilvægt að vant og hæft fólk komi að þessari vinnu. Fyrir þessar kosningar voru ansi margar spurningar sem bárust, enda framboðin fleiri
en venjulega. En allt hafðist þetta og ég er viss um að allt skipulag á sjálfan kjördag verður samkvæmt lögum og reglum.“

Kýs sjálfur snemma

„Nei, formaður yfirkjörstjórnar hefur aldrei gleymt að kjósa. Við hjónin höfum það fyrir sið að kjósa tiltölulega snemma. Við förum venjulega saman á kjörstað og ég hvet alla til að kjósa snemma, sé þess nokkur kostur,“ segir Páll Hlöðvesson formaður yfirkjörstjórnar Norðausturkjördæmis.

karleskil@vikudagur.is

Nýjast