Hverfisráð Hríseyjar fagnar samstarfsvilja Vegagerðar varðandi fyrirhugaða hækkun á gjaldskrá í Hríseyjarferju.
Hverfisráðið átti fund með fulltrúa Vegagerðar, fyrir hönd Almenningssamgangna, fyrr í maí þar sem hækkun á gjaldskrá og fyrirkomulag ferjunnar var rætt.
Vegagerðin/Almenningssamgöngur ákvað í framhaldi að fresta breytingum á gjaldi á upphringiferðum eins og áður var búið að auglýsa. Verður því sami máti á upphringiferðum og verið hefur, meðan unnið er að frekari útfærslu.