"Hver er lykillinn"

Thora Karlsdóttir myndlistamaður opnar sýninguna ‘’Hver er lykillinn"  í  Mjólkurbúðinni í Listagilinu á Akureyri á morgun, laugardag.


Sýningin er  innseting sem er sköpuð inn í rými Mjólkurbúðarinnar og  fjallar um lífið sjálft og leitina að lífshamingjunni. Myndlistamaðurinn  notar  lykla  í ýmsum formum og leikur sér með  efni og ímyndir  margræð tákn, bæði á huglægan og hlutlægan hátt.

 

Thora Karlsdóttir útskrifaðist fra Europaische Kunst Akademi of fine arts 2013. ‘’Lifandi Vinnustofa’’  er í Listagilinu á Akureyri.  Það er bæði vinnustofa, sýningarými og heimili Thoru.Þetta er önnur einkasýning Thoru á Íslandi en áður hefur hún sýnt víða erlendis. Þóra tekur þátt í tveim sýningum erlendis á þessu ári. Hin fyrri er 9. mars í Trier, Þýskalandi. Hin seinni verður 15. september í Chateau de Bourglingster í Luxembourg. 

 

Sýning Thoru Karlsdóttur ‘’Hver er lykillinn’’  stendur til 23. febrúar.

Nýjast