Veðurstfan gerir ráð fyrir að á Norðurlandi eystra verði norðlæg átt - 13-20 með snjókomu. Í fyrramáli verði vindur hægari um tíma, en hvessi aftur seint á morgun. Frost verði á bilinu 0 til 6 stig.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á fimmtudag og föstudag:
Norðan 18-25 m/s og snjókoma. Úrkomulaust að kalla S-til á landinu, en mjög snarpir vindstrengir við fjöll. Frost 0 til 6 stig.
Á laugardag:
Útlit fyrir norðan hvassviðri með snjókomu N-til á landinu, en fari að lægja V-til um kvöldið og stytti upp. Áfram kalt í veðri.
Á sunnudag:
Norðvestan 8-15 m/s A-lands, en annars hægari. Él um landið norðanvert, en léttskýjað annars staðar. Frost 0 til 12 stig, mest inn til landsins.
Á mánudag:
Útlit fyrir suðvestanátt með hlýnandi veðri. Léttskýjað austantil, en annars líklega úrkomulítið.