Veðurstofan segir að í dag verði norðaustan 13-23 m/s á Norðurlandi eystra, slydda eða snjókoma, hvassast á annesjum. Víða norðan 18-23 seint í kvöld og talsverð snjókoma. Dregur lítið eitt úr vindi seint á morgun. Hiti kringum frostmark, en frost 0 til 5 stig í nótt og á morgun.
Óveður er á Siglufjarðarvegi utan Fljóta. Austan Skagafjarðar er víðast hvar ofankoma og snjóþekja eða krap. Skafrenningur er á Öxnadalsheiði og Víkurskarði. Stórhríð er á Hólasandi og ófært um Hófaskarð og Hálsa.