Í nótt og á morgun verður norðlæg átt 18-23 m/s á Norðurlandi eystra. Annað kvöld á að draga úr vindi. Veðurstofan gerir ráð fyrir talsverðri snjókomu. Frost verður á bilinu 0-5 stig. Á vef Vegagarðarinnar eru ábendingar frá veðurfræðingi:
Með kvöldinu bætir enn frekar í vind og ofankomu um landið austan og norðaustanvert og aðstæður á vegum þar verða því afleitar, N 18-25 m/s og snjókoma og skafrenningur, og enn hvassara í vindhviðum. Um landið norðvestanvert bætir í vind í kvöld, og fyrir miðnætti verður væntanlega komin N 18-25 m/s, hvassast á fjallvegum s.s. Steingrímsfjarðarheiði, Þröskuldum, Holtavörðuheiði og Vatnsskarði. Áframhaldandi éljagangur og skafrenningur takmarkar skyggni.
Veðurhorfur á landinu næstu daga:
Á laugardag:
Minnkandi norðanátt, 13-18 m/s um kvöldið. Snjókoma eða slydda N- og A-lands, en annars bjart með köflum. Hiti kringum frostmark.
Á sunnudag:
Norðvestan 8-13 m/s og léttir víða til, en stöku él NA-lands fram eftir degi. Frost 0 til 8 stig, mest í innsveitum.