Húsnæðismál og kjör ofarlega á baugi

Fjölmörg mál voru til umræðu á Stórþingi eldri borgara á Akureyri sem þótti vel heppnað   Mynd  akur…
Fjölmörg mál voru til umræðu á Stórþingi eldri borgara á Akureyri sem þótti vel heppnað Mynd akureyri.is

Allir hópar sem taka þátt í starfsemi félagsmiðstöðvanna Birtu og Sölku á Akureyri kvarta yfir plássleysi og þungum húsgögnum. Þörf er á stærri sal og fleiri félagsmiðstöðvun. Það er góð hugmynd að blanda saman aldurshópum en virkar ekki alltaf í framkvæmd. Því þarf að gæta að mismunandi þörfum eftir því hver aldur hópanna er.

Þetta er meðal þess sem kom fram á Stórþingi eldri borgara á Akureyri nýverið. Ýmis mál voru til umræðu á þinginu. Virk efri ár þar á meðal en almennt þótti þingfulltrúum framboð jákvætt, en skortur væri á að aðgengi fyrir fólk með skertari hreyfigetu. Bent var á að bjóða upp á gönguhópa sem færu hægt yfir, stólaleikfimi og aðstoða fyrir þá sem treysta sér ekki einir.

Þá var rætt um heimaþjónustu og þótti mörgum óljóst hvernig sækja ætti um. Einni kom fram misjöfn ánægja með heimsendan mat og að erfitt væri að geta ekki haft áhrif á matseðilinn.

Húsnæðismál og kjör brenna á eldri borgurum og þá var einnig tekið til umræðu að rafræn þróun samfélagsins hamlar þátttöku margra í elsta aldurshópnum.

Nýjast