Huppa nythæsta kýrin í fyrra

Huppa mjólkaði í fyrra 12.113 lítra/mynd Ágúst Ásgrímsson.
Huppa mjólkaði í fyrra 12.113 lítra/mynd Ágúst Ásgrímsson.

Mjólkurbúin á Eyjafjarðarsvæðinu eru mun stærri en á landsvísu, samkvæmt afurðaskýrslum fyrir síðasta ár. Á landinu öllu var stærð meðalbúsins 38,9 árskýr, en í Eyjafirði voru að jafnaði 47,8 kýr og í SuðurÞingeyjarsýslu voru kýrnar 25,4.

Nythæsta búið fyrir norðan var Syðri-Bægisá og var búið í þriðja sæti á landsvísu. Þar voru árskýrnar 31,9 sem mjólkuðu að jafnaði 7,599 kíló.

Nythæsta kýrin á Eyjafjarðarsvæðinu í fyrra var Huppa frá Kálfagerði, hún var í fimmta sæti yfir afurðahæstu kýr landsins.

Huppa mjólkaði á árinu 12.113 lítra og hámarks dagsnyt var 49,1 lítri. Þetta var fjórða mjaltasskeið Huppu.

Um miðjan janúar fæddis nautkálfur undan Huppu og nautsföðurnum Tópasi. Kálfurinn hlaut nafnið Tárus og hefur hann þegar verið valinn á sæðingarstöð.

Hjónin Ágúst Ásgrímsson og Hulda Sigurðardóttir keyptu Kálfagerði 2002 og reka þar kúa- og hrossaræktarbú.

karleskil@vikudagur.is

Nýjast