Boðið er upp á sannkallaða þjóðhátíðarsiglungu með Húna ll í dag
Boðið verður upp á siglingu með Húna II kl. 16.30. Siglt er frá Fiskihöfninni norðan við ÚA, beint neðan við Hagkaup. Siglingin er 45 mínútna löng. Bætt verður við annarri siglingu kl. 17.15 ef þörf verður á.
Arkitektastofan ALARK arkitektar hlýtur fyrstu verðlaun í samkeppni um skipulag Akureyrarvallar og nágrennis. Alls bárust 16 tillögur í samkeppnina sem Akureyrarbær efndi til í samstarfi við Arkitektafélag Íslands. Ein tillaga reyndist ógild og fjallaði dómnefnd því um 15 gildar tillögur. Í öðru sæti var tillaga marimo arkitekta, Brúum hjarta Akureyrar og í þriðja sæti var tillaga Teikna - Teiknistofu Arkitekta, Vallartorg.
Í gær brautskráði Verkmenntaskólanum á Akureyri 162 nemendur við hátíðlega athöfn í Menningarhúsinu Hofi. Afhent voru 180 skírteini því 18 nemendur brautskráðust með tvö skírteini.
Þórunn Sif núverandi sveitarstjóri Svalbarðsstrandarhrepps greinir frá þvi á samfélagsmiðlum í dag að henni hafi verið boðið að starfa áfram sem sveitarstjóri komandi kjörtímabil.
Sólarorka getur gegnt mikilvægu hlutverki í orkuskiptum á Íslandi. Sérstaklega á afskekktum svæðum og utan raforkukerfisins. Orkusetur Umhverfis- og orkustofnunar úthlutaði samkeppnisstyrkjum til uppsetningar sólarsella árið 2024. Þar var lögð áhersla á verkefni sem draga úr eigin raforkunotkun og minnka losun. Mikil aðsókn var að styrkjunum og vegna takmarkaðs fjármagns fengu verkefni í dreifbýli eða utan samveitna úthlutun.
Talsverður vöxtur er í ferðaþjónustu á Norðurlandi, einkum í vetrarferðaþjónustu, og umtalsverðar fjárfestingar yfirstandandi eða í bígerð á svæðinu. Komufarþegum til Akureyrarflugvallar fjölgaði um 9,5% á síðasta ári og hafa aldrei verið fleiri, þá eru vísbendingar um að erlendir ferðamenn sem heimsækja Norðurland leiti sérstaklega í annars konar afþreyingu en ferðamenn sem koma um Keflavíkurflugvöll. Fjallað var um stöðu og horfur í ferðaþjónustu á Norðurlandi á ráðstefnunni „Segjum sögur af fjárfestingum“ sem Markaðsstofa Norðurlands stóð fyrir í vikunni
Útilistasýningin Heimalingar 2026 verður opnuð 30.maí við Dyngjuna-listhús í Eyjafjarðarsveit. Sýningin á sér flotta sögu en hún hefur verið haldin óslitið frá árinu 2020 og laðað til sín um 20 listamenn á hverju ári, nú eru þeir 29.