Hundakvöld á Listasafninu á Akureyri

Skemmtileg nýjun á Listasafninu  n.k  fimmtudagskvöld
Skemmtileg nýjun á Listasafninu n.k fimmtudagskvöld

Fimmtudaginn 12. júní mun Listasafnið á Akureyri bjóða hunda og eigendur þeirra velkomna á sérstakt hundakvöld. Opið verður frá kl. 19 til 22 og ókeypis inn fyrir eigendur í fylgd hunda.

Léttar veitingar í boði fyrir fjórfætlinga og fyrstu gestir fá óvæntan glaðning. Ketilkaffi verður opið fram eftir kvöldi og þar verður hægt að kaupa veitingar fyrir besta vininn.

Allir hundar þurfa að vera í taumi inn á Listasafninu og eru á ábyrgð eigenda sinna. Gæludýr.is styrkir Hundakvöld í Listasafninu.

Nýjast