Nú þegar þrjár vikur eru liðnar af raunveruleikaþáttunum The Biggest Loser Ísland sem sýndur er á SkjáEinum hefur Akureyringurinn Hrönn Harðardóttir misst 7,5 kg af þyngd sinni, rúmlega 5% af upphaflegri líkamsþyngd. Hrönn hefur mest losað sig við 3,2 kg á einni viku en hún keppir í rauða liðinu undir handleiðslu Everts Víglundssonar. Hrönn er viðskiptafræðinemi við Háskólann á Akureyri.
Samtals 137,5 kg farin
Alls hafa keppendurnir tólf misst 137,5 kg eða að meðaltali 13,1 kg á hvern keppanda. Þrír keppendur eru fallnir úr leik, þau Óðinn Rafnsson, Inga Lára Guðlaugsdóttir og Aðalheiður Þóra Bragadóttir sem féll úr leik í þættinum í síðustu viku. Öll þrjú voru í bláa liðinu þannig að rauða lið Hrannar hefur enn ekki misst neinn keppanda heim á fyrstu þremur vikunum. Mest missti Arnfinnur Daníelsson í fyrsta þættinum þegar hann losaði sig við 12,1 kg á aðeins einni viku sem er ótrúlegur árangur.
Lífstílsbreyting keppenda
The Biggest Loser Ísland gengur út á meira en að fækka kílóum og ekki síður mikilvægt er að keppendur hafa misst að meðaltali 7,6% af líkamsþyngd sinni með breyttum lífstíl og nýju hugarfari gagnvart hollustu, hreyfingu og heilsu. Þjálfarar þáttana leggja mikið upp úr að keppendur hefji breyttan lífstíl sem þau viðhalda eftir að þáttunum lýkur. Keppendur hafa fangað hug og hjörtu íslensku þjóðarinnar með einlægni og baráttuhug en keppninni er ekki lokið fyrir þá keppendur sem sendir eru heim þar sem þau halda áfram að hreyfa sig af krafti og borða hollt eftir að heim er komið. Lokaþátturinn verður í beinni útsendingu í apríl en þá kemur í ljós hvaða keppandi hefur náð mestum árangri.
70% áhorf á fyrsta þátt
Meira en 5.000 heimili fengu sér áskrift að SkjáEinum vikurnar í aðdraganda þáttanna og áskrifendur hafa aldrei verið fleiri. Viðbrögð almennings hafa aldrei verið eins mikil við nokkrum sjónvarpsþætti síðan að SkjárEinn varð að áskriftarsjónvarpi árið 2009. Alls horfði 70% áskrifenda Skjásins á fyrsta þáttinn í frumsýningu, hliðruðu áhorfi eða endursýningu og er þetta mesta áhorf á stakan sjónvarpsviðburð í sögu SkjásEins.