Að loknum hefðbundnum vinnudegi í gær fór starfsfólk Norðurorku ásamt fjölskyldum sínum í hreinsunarátak á svæðinu frá Glerárvirkjun upp að starfsstöð Norðurorku að Rangárvöllum.
Tínt var upp rusl við Glerárvirkjun og rafveitupollinn, meðfram göngustígnum upp með Glerá og skóginum þar í kring, á svæðinu norðan, austan og sunnan við Rangárvelli þar með talið upp með Hlíðarfjallsvegi frá hringtorginu á Hlíðarbraut upp að Rangárvöllum.
Eftir velheppnað hreinsunarátak mætti fólk glatt en þreytt á starfsstöð Norðurorku þar sem biðu grillaðir hamborgarar, pylsur og pizzur.