Hraustir norðanmenn

Fjölskylda í formi; Sigurkarl Aðalsteinsson ásamt sambýliskonu sinni Jónu Lovísu Jónsdóttir (t.h) og…
Fjölskylda í formi; Sigurkarl Aðalsteinsson ásamt sambýliskonu sinni Jónu Lovísu Jónsdóttir (t.h) og dóttir hennar Irma Ósk.

Akureyringar gerðu góða hluti á Íslandsmótinu í fitness og vaxtarrækt sem fram fór í Háskólabíói um páskana og unnu sex einstaklingar Íslandsmeistaratitil.  Sigurkarl Aðalsteinsson sigraði í vaxtarrækt karla undir 80 kg, Jóna Lovísa Jónsdóttir sigraði í fitness kvenna 35 ára og eldri og varð í þriðja sæti í heildarkeppni. Irma Ósk Jónsdóttir sigraði í módelfitness unglinga og varð einnig í þriðja sæti í heildarkeppni.

Þá sigraði Alfreð Pálsson í vaxtarrækt 40 ára og eldri og varð í öðru sæti í heildarkeppninni. Elva Katrín Bergþórsdóttir sigraði í módelfitness kvenna-168 flokki og í heildarkeppninni og Gyða Dröfn Sveinbjörnsdóttir sigraði í -163 flokki.

Nýjast