Á Öldrunarheimilum Akureyrar (ÖA) starfa einungis níu karlar við umönnun í tæplega sex stöðugildum og eru konur um 97% starfsmannahópsins. Í von um að hægt verði að leiðrétta nokkuð þetta mjög svo ójafna kynjahlutfall hefur nú verið gripið til þess ráðs hjá ÖA að auglýsa sérstaklega eftir karlmönnum til umönnunarstarfa.
Jafnréttisstefna Akureyrarbæjar og jafnréttisáætlun ÖA gerir ráð fyrir að sérstaklega sé unnið að því að jafna stöðu kynjanna innan starfsgreinar og að störf flokkist ekki í sérstök kvenna- eða karlastörf. Í þessu skyni skuli gæta jafnræðis í ráðningum og einnig beita sértækum aðgerðum til að rétta kynjahalla í störfum. Nýverið skilaði starfshópur félagsmálaráðs skýrslu með tillögum um aðgerðir til að gera störf á ÖA sýnileg og áhugaverð. Meðal tillagna er að beita sértækum aðgerðum við sumarráðningar 2013 til að auka hlutfall karla í störfum á ÖA.
Á þessum forsendum er nú auglýst sérstaklega eftir körlum til starfa við Öldrunarheimili Akureyrar og þeir hvattir til að sækja um störf við sumarafleysingar. Lög um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla, nr. 10/2008, kveða jafnframt á um heimild til að auglýsa sérstaklega eftir öðru kyni í störf ef tilgangur auglýsandans er að stuðla að jafnari kynjaskiptingu innan starfsgreinarinnar og skal það þá koma fram í auglýsingunni.