Fyrirliði karlaliðs KA í blaki, Piotr Kempisty, var fjarri góðu gamni þegar KA lék gegn HK og Stjörnunni um helgina í Mikasa-deildinni. Kempisty var nýverið dæmdur í tveggja leikja bann af aganefnd BLÍ fyrir ógnandi framkomu og hótanir um ofbeldi í garð dómara undir lok leiks Stjörnunnar og KA í bikarnum um þar síðustu helgi. Aganefnd BLÍ segir á heimasíðu sambandsins að hótun um ofbeldi er mál sem nefndin lítur alvarlegum augum og fordæmir slíka háttsemi á blakvellinum.
Miklu munaði um Piotr í leikjunum tveimur hjá KA en liðið tapaði þeim báðum 0-3.