Hótaði að drepa sambýliskonu sína

Hérasdómur Norðurlands eystra
Hérasdómur Norðurlands eystra

Héraðsdómur Norðurlands eystra hefur úrskurðað karlmann í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir líkamsárás gegn sambýliskonu sinni og að hóta henni lífláti.

Maðurinn réðist á konuna í tvígang síðasta sumar með sjö daga millibili. Í dómnum segir að ákærði hafi m.a. kýlt konuna í kviðinn og skallað hana ítrekað í andlitið. Þá sagði ákærði við konuna, „það ætti að berja þig, það ætti að drepa þig og þú átt skilið að vera drepin, ég ætla að drepa þig.“ Í dómnum segir að ákærði hafi misnotað áfengi og lyf um hríð og að hann sé í slíku ástandi afar árásargjarn.

throstur@vikudagur.is

Nýjast