Áhugahópur um oddvita Framsóknarflokksins í Norðausturkjördæmi lét Gallup skoða hvern íbúar Akureyrar og nágrennis vilja sem oddvita flokksins fyrir komandi alþingiskosningar, Höskuld Þórhallsson þingmann eða Sigmund Davíð Gunnlaugsson formann.
Úrtakið var 1080 manns á Akureyri og nágrenni.
Sverendur voru 699, 560 tóku afstöðu og 139 tóku ekki afstöðu.
380 sögðust vilja að Höskuldur Þórhallsson fari fyrir framboðslistanum, eða 67,8 %
114 nefndu hvorugan, eða 20,4 %
66 sögðust vilja Sigmund Davíð Gunnlaugsson, eða 11,8 %
Ef miðað er við svör þegar annar hvor er nefndur, er Höskuldur með 85,2 % fylgi og Sigmundur Davíð 14,8 % fylgi.
Stuðningsmenn Höskuldar fagna þessari könnun en stuðningsmenn Sigmundar Davíðs segja óeðlilegt að kanna fylgið á afmörkuðu svæði.
Nánar er fjallað um könnunina í prentútgáfu Vikudags, sem kemur út í dag.