Höskuldur Þórhallsson þingmaður Framsóknarflokksins hefur ákveðið að gefa kost á sér í fyrsta sætið í Norðausturkjördæmi. "Ég hef tekið þá ákvörðun, í samráði við fjölskyldu mína, að undangengnum fjölmörgum áskorunum að bjóða mig fram til 1. sætis fyrir Framsóknarflokkinn í Norðausturkjördæmi og til forystustarfa fyrir flokkinn fyrir komandi Alþingiskosningar.
Á flokksþingi Framsóknarflokksins árið 2009 fann ég breiða samstöðu á meðal Framsóknarmanna um að ég skipaði mér í forystusveit flokksins. Ég ákvað að gera það með störfum mínum í fjárlaganefnd og sem þingmaður í einu af víðáttumestu kjördæmum landsins. Ég ákvað að láta verk mín tala og berjast ötullega fyrir hagsmunum kjördæmisins og landsins í heild. Ég hef mætt á alla þá íbúa- og borgarafundi sem haldnir hafa verið í kjördæminu fyrir utan einn sem ég átti ekki heimangengt á.
Ég er stoltur af baráttu minni fyrir því að Íslendingar tækju ekki á sig Icesave skuldbindingar Breta og Hollendinga. Sú barátta var löng og ströng og ákvörðun þjóðarinnar um að deilan skyldi leyst fyrir alþjóðlegum dómstólum var mikill sigur fyrir sanngirni og lýðræði á Íslandi.
Ég hef verið ötull talsmaður þess að velferðarkerfi þjóðarinnar skyldi varið með öllum ráðum. Boðaður niðurskurður í heilbrigðiskerfinu hefði getað sett það á hliðina og stefnt öryggi íbúa landsins í hættu, ekki síst á landsbyggðinni. Það var áfangasigur að milda höggið, en mikil vinna er fyrir höndum við að byggja upp þjónustuna sem nauðsynlegt er að allir íbúar landsins búi við. Ég vil taka virkan þátt í því og leggja mitt af mörkum í þeirri vegferð.
Framtíð Íslands er björt, ef vel er haldið á málum. Miklir möguleikar eru til atvinnuuppbyggingar og lega landsins á norðurslóðum skapar gríðarleg tækifæri fyrir alla landsmenn. Á síðasta miðstjórnarfundi Framsóknarflokksins var mér falið að leiða hóp einstaklinga til að móta byggðastefnu fyrir allt landið. Vinnan við þetta verkefni er komin vel á veg og verða niðurstöðurnar kynntar á næsta flokksþingi, sem haldið verður á næsta ári.
Ég mun formlega tilkynna framboð mitt á kjördæmisþingi Framsóknarflokksins í Norðausturkjördæmi, sem haldið verður í Mývatnssveit síðustu helgina í október. Þar verður ákveðið með hvaða hætti verður stillt upp á framboðslista flokksins fyrir komandi kosningar. Ég vona að lýðræðisleg aðferð verði farin, þar sem öllu framsóknarfólki verði gefinn kostur á að taka þátt. Það er í anda nýrrar Framsóknar," segir í yfirlýsingu frá Höskuldi.