Mikið hefur verið framkvæmt á vegum bæjarins á undanförnum árum sem hefur valdið því að bærinn okkar er skuldsettur, þessu þurfum við að snúa við og rétta af fjárhag bæjarins. Bæjarsjóður hefur verið rekinn með halla á undanförnum þremur árum og nú er staðan sú að skuldir bæjarins (A og B samstæðu) eru um 125% af tekjum bæjarsjóðs þrátt fyrir sölu á fráveitunni til Norðurorku. Nauðsynlegt er að ná þessu hlutfalli undir 100% á næstu misserum.
Búa þarf atvinnulífinu það góð skilyrði að Akureyri sé og verði eftirsóknarverður staður fyrir atvinnurekstur af öllu tagi. Ein stærsta forsenda fyrir vali fólks á búsetu er einmitt stöðugt og fjölbreytt atvinnulíf. Það er gott að búa á Akureyri og við höfum mikil tækifæri til vaxtar í framtíðinni t.d. með tilkomu hafnar við Dysnes sem þjónað getur mögulegum umsvifum við Grænland o.s.frv. Til þess að þessi áform geti orðið að veruleika þurfa innviðir sveitarfélagsins að vera nógu öflugir til að geta þjónustað þessi verkefni og önnur er kunna að bjóðast. Í þessu samhengi er stuðningur við áframhaldandi uppbygging í ferðaþjónustu mikilvægur og má þar nefna uppbyggingu í Hlíðarfjalli sem spennandi verkefni.
Í skólamálum er mikilvægt að hlúa að því frábæra starfi sem unnið er í leik- og grunnskólum Akureyrar og efla stoðþjónustu við nemendur og fjölskyldur til að sem allra flestir nái sínum markmiðum á sínum forsendum. Hörgull hefur verið á þjónustu sálfræðinga og geðlækna og þurfum við að vinna með heilsugæslunni og FSA að því að þau börn sem á þurfa að halda hafi gott aðgengi að þjónustu þessara sérfræðinga. Það þarf að styrkja verknám og hvetja ungt fólk til þess að fara í verk- og tækninám svo að við getum tekið við þeim tækifærum sem eru í farvatninu.
Ég sækist eftir 3.-4. sæti í prófjkjöri sjálfstæðisflokksins á Akureyri 8. febrúar næstkomandi.
Elías Gunnar Þorbjörnsson