Höfuðverk

Myndlistahópurinn Höfuðverk opnar myndlistasýningu í Mjólkurbúðinni í listagilinu á Akureyri í dag, klukkan 14.

Myndlistahópurinn HÖFUÐVERK samanstendur af níu listakonum sem starfað hafa saman meira og minna síðan árið 2006, mikil fjölbreytni er innan hópsins og hefur hver og ein hefur sinn sérstaka stíl sem kemur sterklega fram í verkum þeirra.

Sýning Höfuðverk samanstendur af olíumálverkum,  málverkum með blandaðri tækni  og verkum unnum í plexí gler.

Á sýningunni í Mjólkurbúðinni sýna fimm af myndlistakonum hópsins og það eru:
Áslaug Anna
Ásta Bára
Gulla
Hrönn Einars
Telma Brimdís

Sýning hópsins í Mjólkurbúðinni stendur frá 1.-17 júní og er opið laugardaga og sunnudaga kl. 14-17 og einnig á þjóðhátíðadaginn 17. júní sem er lokadagur sýningarinnar.

Nýjast