"Það er mikilvægt að Akureyri sé samkeppnishæfur valkostur þegar kemur að búsetu fólks og þá sérstaklega ungs fólks sem er að koma úr námi. Fjölbreytt atvinnustarfsemi og þá atvinnumöguleikar skipta flesta miklu máli. En ekki má vannmeta aðra þætti eins og t.d. skóla-, heilbrigðis- og félagsþjónustu og möguleika á afþreyingu, útivist, íþróttum og menningu. Allt helst þetta í hendur auk þess að styrkja grunninn fyrir atvinnustarfsemina í sveitarfélaginu," segir Sigurjón Jóhannesson verkfræðingur í aðsendri grein í Vikudegi. Sigurjón sækist eftir 2-4. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins á Akureyri