Akureyri er fjölmennasta sveitarfélag okkar landshluta með rúmlega 18 þús. íbúa. Þrátt fyrir að mikill meirihluti íbúanna búi í þéttbýli fyrir botni Eyjafjarðar hefur sveitarfélagið þá sérstöðu að innan þess eru tveir minni byggðakjarnar í Hrísey og Grímsey. Taka verður mið af þessu þegar þjónusta sveitarfélagsins við íbúa er mótuð.
Akureyri er höfuðstaður Norðurlands . Það eru ekki mörg bæjarfélög af svipaðri stærð á meginlandi Evrópu sem geta státað af viðlíka framboði í þjónustu og viðburðum. Þetta á sérstaklega við um sérhæfða þjónustu, sérverslanir og menningarviðburði. Í þessu samhengi skipta samgöngur miklu máli, bæði austur og vestur og innan Eyjafjarðar. Þarna njótum við, íbúar Akureyrar, þess að eiga góða granna og ekki síður ferðamanna, bæði innlendra og erlendra, sem heimsækja bæinn. Með tilkomu Vaðlaheiðarganga á að vera hægt að efla Akureyri enn frekar sem þjónustumiðstöð fyrir Norður- og Austurland.
Verktakar og þjónustufyrirtæki á Akureyri eru í auknum mæli farin að sinna verkefnum erlendis. Á næstu árum verða möguleikar í auknum verkefnum á Grænlandi, skipaferðum um norðurslóðir og mögulegri olíuleit. Bærinn er vel staðsettur til að sinna þessum verkefnum. Það má því búast við aukinni eftirspurn eftir starfsfólki menntuðu í verk- og tæknigreinum. Stuðla má að námi sem hentar, með samvinnu VMA, Háskólans, iðnfyrirtækja, verkfræðistofa auk opinberra aðila eins og Akureyrarbæjar eða AFE.
Innanbæjar á Akureyri eru strætóferðir SVA alfarið greiddar af bæjarfélaginu og almennt er ánægja með það. Meira hefur aftur á móti verið rætt um almenningssamgöngur á milli landshluta og aðkomu sveitarfélaganna í gegnum landshlutasamtök þeirra. Niðurgreiddar samgöngur á vegu opinbera aðila mega ekki verða til þess að einkaframtak á sviði rútu- og leigubílaaksturs leggist af.
Það er mikilvægt að Akureyri sé samkeppnishæfur valkostur þegar kemur að búsetu fólks og þá sérstaklega ungs fólks sem er að koma úr námi. Fjölbreytt atvinnustarfsemi og þá atvinnumöguleikar skipta flesta miklu máli. En ekki má vannmeta aðra þætti eins og t.d. skóla-, heilbrigðis- og félagsþjónustu og möguleika á afþreyingu, útivist, íþróttum og menningu. Allt helst þetta í hendur auk þess að styrkja grunninn fyrir atvinnustarfsemina í sveitarfélaginu.
Sigurjón Jóhannesson.
Höfundur er verkfræðingur og sækist eftir 2-4. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins á Akureyri.