Hlynur Hallson myndlistarmaður hefur verið ráðinn forstöðumaður Sjónlistamiðstöðvarinnar á Akureyri. Listasafnið á Akureyri og fjölnotahúsin Ketilhúsið og Deiglan eru rekin af Sjónlistamiðstöðinni auk þess sem umsjón með vinnustofum í Gilinu er í hennar höndum.
Hlynur var ráðinn úr hópi níu umsækjenda. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri árið 1988, fornámi við Myndlistarskólann á Akureyri árið 1990, útskrifaðist frá fjöltæknideild Myndlista- og handíðaskóla Íslands árið 1993. Á árunum 1993-1997 stundaði Hlynur framhaldsnám í myndlist við Fachhochschule Hannover, Hochschule für bildende Künste í Hamburg, Kunstakademie Düsseldorf og lauk mastersgráðu frá Hannover árið 1997.
Hlynur hefur verið sjálfstætt starfandi myndlistarmaður frá árinu 1996 ásamt því að kenna við Listaháskóla Íslands og Myndlistarskólann á Akureyri. Hlynur hefur verið virkur þátttakandi í alþjóðlegu samstarfi, sett upp sýningar víða um heim, starfað sem sýningarstjóri hér heima og á erlendri grund. Hlynur sat í safnráði Kunstverein Hannover á árunum 1997-2001, var formaður Sambands íslenskra myndlistarmanna árið 2009-2010, sat í stjórn Bandalags íslenskra myndlistarmanna á sama tímabili, átti sæti í stjórn Kynningarmiðstöðvar íslenskrar myndlistar frá árinu 2007-2010 og situr nú í stjórn Listskreytingasjóðs ríkisins. Hlynur hefur rekið Verksmiðjuna á Hjalteyri ásamt hópi myndlistarmanna frá árinu 2008.
Hlynur tekur til starfa hjá Sjónlistamiðstöðinni að hluta í byrjun maí en að fullu þann 1. ágúst næstkomandi.