Hlutverk bílasalans

„Bílasalinn er fulltrúi beggja, kaupanda og seljanda. Hann sér um að öll gögn séu í lagi, hvort veð séu á bílnum og svo framvegis. Bílasalinn sér oft um að sækja um ný lán og hann gengur frá endanlegum viðskiptum ef samningar um viðskipti takast. Þá ber bílasalanum að sjá um eigandaskipti og gera upp opinber gjöld. Ef upp kemur ágreiningur um viðskiptin, er hlutverk bílasalans að leysa úr þeim málum. En fyrst og fremst er það hlutverk bílasalans að gæta hagsmuna seljanda og kaupanda, hans hagur er að allir séu sáttir, “ segir Áskell Þór Gíslason rekstrarstjóri bílaþjónustu Hölds.

 Er algengt að fólk hafi talið sig kaupa köttinn í sekknum?

 „Það er nú ekki algengt en kemur fyrir, rétt eins og í öllum viðskiptum. Þess vegna leggjum við ríka áherslu á að kaupandinn kynni sér ástand bílsins vel áður en kaup eru endanlega ákveðin. Hvað seljandann varðar, þá er sömuleiðis mikilvægt að allir hlutir séu á hreinu. Um bílaviðskipti gilda ákveðin lög, sem vernda bæði kaupanda og seljanda. Samkvæmt ánægjukönnun semgerð var á landinu öllu í fyrra kom bílasala Hölds mjög vel út, hún staðfestir raun og veru að þjónustan er góð.“

Fjármögnun

„Eftir bankahrun var erfitt að fá lán til að kaupa notaðan bíl, en í dag er staðan allt önnur. Þegar fjármögnunin er auðveldari eykst bílasalan og ég geri ráð fyrir nokkuð líflegum viðskiptum á þessu ári, salan síðustu vikur og mánuðir staðfesta þessa skoðun mína.“

Landið allt

 „Nei, það eru ekki bara íbúar á Eyjafjarðarsvæðinu sem kaupa bíla hjá okkur, heldur fólk af öllu landinu. Okkar sérstaða er að selja líka nýlega bílaleigubíla, sem hefur verið afskaplega vel við haldið. Við megum ekki gleyma því að bílaleiga er atvinnurekstur og viðskiptavinirnir vilja fá góða og trausta bíla. Þess vegna leggjum við ríka áherslu á að bílarnir séu í góðu standi, þannig að ég get hiklaust mælt með því að kaupa notaðan bílaleigubíl. Við erum með afar fullkomið verkstæði, þar sem bílarnir eru skoðaðir reglulega af reyndu og færu fagfólki.“

Nánar er rætt við Áskel í prentútgáfu Vikudags

Nýjast