Hlaupið í Grímsey um helgina

Norðurheimskautsbaugshlaup TVG Zimsen var hlaupið í Grímsey um helgina í einmuna veðurblíðu og tóku um fimmtíu manns þátt. Hlaupinn var einn hringur í Grímsey, um 12 km, auk þess sem boðið var upp á skemmtiskokk fyrir börnin í eynni.

Hlaupaleiðin í Grímsey er einstök. Lagt var af stað við félagsheimilið Múla og hlaupið í norður með sjónum í Bása, sem er við flugvöllinn. Áfram var haldið meðfram sjónum og hlaupið norður á nyrsta odda Grímseyjar og þar með Íslands. Síðan var  bjarbrúninni á eynni austanverðri fylgt til suðurs að vitanum og þaðan e hlaupið til norðurs að félagsheimilinu. Þessi hringur er um 12 km langur.

Ágúst Bergur Karlsson kom fyrstur í mark í dag í karlaflokki á tímanum 48:44 mín. Annar varð Arnar Bragason á tímanum 51:38 mín og þriðji Sigurður Seán Sigurðsson á tímanum 52:10 mín. Í kvennaflokki var Sonja Sif Jóhannsdóttir fljótust á tímanum 54:10 mín, önnur varð Rakel Káradóttir á tímanum 57:25 mín og Guðrún Nýbjörg Svanbjörnsdóttir þriðja á tímanum 57:52.

Auk 12 km hlaupsins stóðu skipuleggjendur hlaupsins fyrir skemmtiskokki fyrir börnin í Grímsey. Tólf börn hlupu um einn km og fengu að launum verðlaunapeninga.

Nýjast