HK hafði betur gegn KA, 3-1, er liðin mættust í Fagralundi í Kópavogi í gærkvöld í fyrsta leik liðanna um Íslandsmeistaratitil karla í blaki. KA vann fyrstu hrinuna, 25-18, en þá fóru heimamenn í gang og unnu næstu þrjár hrinur 25-14, 25,22 og 25-15. HK hefur því tekið 1-0 forystu í einvígi liðanna en vinna þarf þrjá leiki til þess að verða Íslandsmeistari.
Piotr Kempisty var stigahæstur í liði KA með 26 stig, Davíð Búi Halldórsson skoraði níu stig og Ævarr Freyr Birgisson sjö stig. Hjá HK var Brynjar Pétursson stigahæstur með ellefu stig og þeir Einar Sigurðsson og Orri Þór Jónsson skoruðu tíu stig hvor. Liðin mætast öðru sinni á Akureyri annað kvöld, föstudag, kl. 19:30 í KA-heimilinu.