Fulltrúar hjúkrunarfræðinga og framkvæmdarstjórn á Sjúkrahúsinu á Akureyri undirrituðu í gær nýjan stofnanasamning. Hjúkrunarfræðingar fá sambærileg kjör og kollegar þeirra á Landspítalanum og verður samningurinn kynntur fyrir starfsfólki síðar í vikunni. Vinna við nýjan samning hófst í nóvember 2011 en stofnanasamningur hjúkrunarfæðinga hafði ekki verið endurskoðaður síðan árið 2006.