Hjúkrunarfræðingar á Sjúkrahúsinu á Akureyri eru almennt einum launaflokki lægri en kollegar þeirra á Landspítalanum. Í svari frá Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga til blaðsins kemur fram að flestir hjúkrunafræðingar á LSH eru í launaflokki 5-6 og 4. álagsþrepi, sem gera 345.305 til 361.404 krónur á mánuði, samkvæmt launatöflu félagsins.
Á Sjúkrahúsinu á Akureyri eru flestir hjúkrunarfræðingar hins vegar í launaflokkum 4-5 og 4. álagsþrepi. Það gera 329.970 til 343.305 krónur á mánuði eða 15-18 þúsund krónum lægra. Ástæðuna má rekja til stofnanasamninga og misjafnra ákvæða um röðun starfa.
Framboð meira en eftirspurn
Einnig hefur framboð af hjúkrunarfræðingum á Akureyri verið meira en eftirspurnin undanfarin ár. Slíkar aðstæður leiða sjaldnast til hækkunar launa, segir Elsa B. Friðfinnsdóttir, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, í svari til blaðsins. Þá getur einnig munað allt að 13 þúsund krónum á mánuði í byrjendalaunum hjúkrunarfræðinga á milli stofnana. Nýjir starfsmenn á Akureyri falla í launaflokk 1 en á LSH í launaflokk 1-2.
Um 250 hjúkrunarfræðingar hafa sagt upp störfum á Landspítalanum vegna óánægju með launakjör. Samkvæmt heimildum Vikudags er óánægja meðal hjúkrunarfræðinga á Akureyri með sín launakjör.
throstur@vikudagur.is