Hjördís Þórhallsdóttir ráðin þjónustustjóri atNorth á Akureyri

Hjördís Þórhallsdóttir
Hjördís Þórhallsdóttir

Hjördís Þórhallsdóttir hefur verið ráðin í starf þjónustustjóra hátæknigagnavers atNorth á Akureyri og hefur störf í júní. Viðamikil reynsla Hjördísar sem stjórnanda kemur að góðum notum við yfirstandandi stækkun gagnaversins sem kallar bæði á aukinn mannafla og eykur þjónustu þess. Meðal verkefna Hjördísar verður að tryggja farsæla innleiðingu nýrra viðskiptavina atNorth og sjá til þess að hæsta þjónustustig fyrirtækisins verði ávallt uppfyllt.

Hjördís er reynslumikill stjórnandi og hefur tekist á við fjölbreytt og krefjandi verkefni frá því hún útskrifaðist sem verkfræðingur og hefur unnið að þróun og verkefnastjórnun á vörum, tækjum, búnaði og þjónustu.

Fyrir komuna til atNorth var Hjördís flugvallarstjóri á Akureyrarflugvelli og umdæmisstjóri hjá Isavia frá 2012. Þar áður var hún deildarstjóri vinnuflokka Vegagerðarinnar frá 2008 til 2012 og verkefnastjóri og Technical Lead í þróunardeild Össurar milli 2003 og 2008.

Hjördís útskrifaðist með B.Sc. gráðu í vöruhönnunarverkfræði frá Háskólanum í Skövde í Svíþjóð 1998 og lauk M.Sc. gráðu Engineering Product Design við South Bank University í Lundúnum 1999.

Erling Guðmundsson, framkvæmdarstjóri rekstrar atNorth:

„Við bjóðum Hjördísi hjartanlega velkomna til starfa og hlökkum til samstarfsins á Akureyri. Með uppgangi gervigreindar hefur stóraukist eftirspurn eftir þjónustu gagnavera. Það finnst jafnt á Akureyri sem öðrum gagnaverum atNorth á Íslandi og á Norðurlöndum, en í þeim er lögð áhersla á samhæft verklag og þjónustu. Hjá okkur fær fólk tækifæri til að starfa við fremstu tækni gagnavera og gervigreindar hverju sinni og læra það sem nýjast gerist í þeim geira á alþjóðlegum vinnustað.“

Hjördís Þórhallsdóttir, þjónustustjóri atNorth á Akureyri:

„Ég er afskaplega spennt að hefja störf í jafnspennandi og kvikum geira og gagnaversiðnaðurinn er og hlakka mjög til þess að taka til hendinni í gagnaveri atNorth hér á Akureyri. Það verður gaman að byggja á fyrri reynslu í starfsemi þar sem fjárfestingartölur hlaupa á milljörðum og umfangið fer ört vaxandi.“

Í sumar er gert ráð fyrir því að 25 verði í föstu starfi í gagnaveri atNorth á Akureyri og fjölgi svo enn eftir því sem stækkun gagnaversins vindur fram. Bein fjárfesting atNorth vegna stækkunarinnar á Akureyri nemur 12 til 13 milljörðum króna og fjárfesting viðskiptavina í búnaði fer langleiðina í hundrað milljarða.

Yfirstandandi er stækkun gagnavera atNorth á Akureyri og í Reykjanesbæ, en að auki rekur atNorth gagnaver í Hafnarfirði og fimm til viðbótar á Norðurlöndum. Fram undan á þessu ári er svo opnun tveggja nýrra gagnavera í Finnlandi og Danmörku. Þá er ellefta gagnaver atNorth í byggingu í Ølgod í Danmörku.

Frá þessu segir í tilkynningu frá atNorth á Akureyri

Nýjast